Expandos er þrískiptur 22-36 lítra stækkanlegur bakpoki fyrir 15,6″ – 17,3″ fartölvur, 11″ spjaldtölvur, hágæða YKK rennilásar, USB-A og USB-C raufar til að hlaða snjalltækin á ferðinni
$ 99.49
Einn allra vinsælasti pakpokinn frá Mark Ryden er Expandos 22 lítra stækkanlegur í 36 lítra allt eftir þörfum hvers og eins. Hann er þrískiptur með góðu geymslurými ásamt stórum renndum vasa að framan. Á hlið bakpokans eru USB-A og USB-C raufar sem tengjast hleðslubanka sem geymdur er ofan í töskunni. Eigandi bakpokans getur því hlaðið snjalltækin á ferðinni hvar og hvenær sem er. Bakpokinn er slitsterkur, úr vatnsfráhrindandi efni og loftar vel við bak. Hann er með sér vasa fyrir allt að 17,3″ fartölvur og 11″ spjaldtölvur. Á axlaról er renndur vasi sem hægt er að geyma seðla, kort, lykla o.fl. Það er hægt að opna bakpokann í 180 gráður. Það er festing á bakpokanum sem hægt er að festa á handfangið á ferðatöskunni sem við drögum á eftir okkur á flugvellinum og í ferðalaginu. Bakpokinn er með hágæða YKK rennilásum sem endast mun lengur en venjulegir rennilásar. Framan á töskunni er stór renndur vasi og annar minni. Innra rými bakpokans er þrískipt. Fyrst kemur stórt rými með þremur vösum ásamt USB-A og USB-C snúrum sem tengt er við hleðslubanka sem geymdur er ofan í töskunni. Rýmið í miðjunni er hægt að opna í 180 gráður. Öðru megin er stór renndur vasi en hinu megin er stórt rými með renndu neti. Aftast við bak er stórt rými með fjórum vösum öðru megin en hinu megin eru tveir vasar fyrir allt að 15,6″ – 17,3″ fartölvur og 11″ spjaldtölur. Við bak er renndur vasi. Það er hægt að hafa bakpokann á bakinu eða halda á honum á hlið eins og helgartösku (sjá ljósmynd). Frábær, stílhreinn og vandaður bakpoki sem hentar fyrir vinnu, skóla og ferðalög. – Litur: Svartur – Stærð: 26x30x46 cm (LxBxH) – Þyngd: 1,4 kg – Axlarólar: 40-85 cm – Hágæða YKK rennilásar – Utanáliggjandi USB-A og USB-C tengi – Efni: Oxford – 15,6″ – 17,3″ fartölvur & 11″ spjaldtölvur
You may also like…
-
Muke III er stílhrein & glæsileg fartölvutaska sem fær fólk til að snúa höfðinuSelect options
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
-
VersaTech Pro er hinn fullkomni, létti og endingargóði 15,6″ fartölvubakpoki með YKK rennilásAdd to cart
-
TechSafe hliðartaskan er stílhrein og glæsileg fyrir fólk á ferðinniAdd to cart
-
Slim I er léttur fartölvubakpoki (0,75 kg) sem er hannaður fyrir fólk á ferðinniSelect options
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page




The Aspect myndavélataskan er 20 lítra en stækkanleg í 30 lítra, höggvarin, vatnsheld & slitþolin
Sheer Professional fartölvuvasi fyrir allt að 15″ fartölvur
Minimalism I er stækkanlegur bakpoki fyrir daglega notkun
Rhombus Crossbody / hliðartaskan er með harðri varnarskel og USB tengjum til að hlaða snjalltækin á ferðinni